Ekki seinna vænna en að skrifa fyrstu færsluna...
...hér er nú ekki mikið að gerast en annars er nóg að gerast í mínu lífi þessa dagana.
Í næstu viku verð ég eins árs og þess vegna er ég rosalega upptekin við að æfa mig að standa upp. Ég er alveg farin að fara upp á hnéin og síðustu tvo daga hefur mér tekist nokkrum sinnum að toga mig alla leiðina upp en það tekst sko ekki alltaf hjá mér og þá verð ég soldið pirruð. Hugurinn er kominn langt á undan getunni og það fer soldið mikið í taugarnar á mér að geta ekki labbað sjálf. Læknirinn í ungbarnaverndinni bjóst ekki við að ég yrði nógu sterk í fótunum og liðamótum fyrr en í kringum 14 mánaða svo ég verð víst bara að halda áfram að æfa mig svo ég verði orðin flott í sumar!
Ég er svona að velta fyrir mér hvort ég eigi að bjóða ættingjum í smá kaffiboð á afmælisdaginn minn en það fer reyndar alveg eftir því hvort mamma nenni að baka kökur :o)
Mömmu finnst ótrúegt að aðeins fyrir tæpu ári síðan var ég svona pínulítið rúsínurassgat eins og á myndinni hér til hliðar!
- Ég fékk sjöttu tönnina mína Sóley Von 11 mánaða
- Ég fékk fimmtu tönnina mína Sóley Von 11 mánaða
- Ég fékk fjórðu tönnina mína Sóley Von 10 mánaða
- Þegar ég var 10 mánaða var ég orðin 75,60 cm og 9.650,00 kg. Sóley Von 10 mánaða
- Ég fékk þriðju tönnina mína Sóley Von 9 mánaða
- Velti mér yfir á magan Sóley Von 9 mánaða
- Fékk skæða sveppasýkingu, fyrst í munn og svo á bleyjusvæði í lok janúar 2011 Sóley Von 9 mánaða
- Ég hætti á brjósti. Eftir það fékk ég Kalkbætta soyja mjólk í glas og pela. Einnig var ég farin að borða allan almennan mat sem var mjólkurlaus vegna bráðaofnæmis fyrir mjólk sem ég greindist með þegar ég var 6 mánaða. Sóley Von 9 mánaða
- Þegar ég var 7 mánaða var ég orðin 70,00 cm og 8.240,00 kg. Sóley Von 7 mánaða
- Fyrsta skiptið sem ég sat án hjálpar Sóley Von 7 mánaða
- Ég byrja á fastri fæðu og uppáhalds maturinn minn er Sóley Von 6 mánaða
- Velti mér yfir á bakið Sóley Von 6 mánaða
- Ég sagði fyrsta orðið mitt, það var "mamma", þá meinti ég mamma Sóley Von 5 mánaða
- Ég var skírð Sóley Von Taylor þann 12.6.2010 og voru vottar Anna Karlsdóttir Taylor föðursystir mín og Auður Guðmundsdóttir móðursystir mín. Skírnin fór fram í stofunni heima á Mávatjörninni og presturinn sem skírði mig hét Erla Guðmundsdóttir. Í skírnagjöf fékk ég Fullt fullt fullt af fallegum fötum, teppi, sængurver, spiladós, myndaalbúm, hringlu og peninga. Sóley Von 6 vikna
- Lyfti mér upp á olnbogana Sóley Von 3 vikna





